postheadericon Folöld 2012

Folöld 2012

Fyrsta folaldið í ár fæddist 7. maí

Rauðstjörnótt hryssa undan Trú frá Hólavatni

og Skugga frá Hofi I

IMG_3038

 

postheadericon Vordís 4. vetra

Þetta er Vordís sem er fjögurra vetra undan Hrímu og Hnokka frá Þúfum, vorum að líta

á tamninguna hjá Elvari Þormars

 

postheadericon Svava og systurnar

Hérna er ég með þær systur Roðadísi og Snædísi

Svava, Roðadís og Snædís

 

postheadericon Veturgömlu tryppin okkar

Hérna eru veturgömlu tryppin okkar

Þessi brúna rakaða er Viðja en hún er búin að vera inni síðan um áramót, hún er undan Gráðu og Breka frá Strandarhjáleigu.

Sú móálótta er Gletta undan Gyðju frá Ey II og Breka frá Strandarhjáleigu, brún er Esja undan Gefjuni og Hófi frá Varmalæk.

Rauðskjóttur er Þór undan Glennu frá Kirkjubæ og Ábóta frá Söðulsholti (Sigurþór Stefánsson á Þór)

og loks er brúntvístjörnótt hryssa Rimma, hún er undan Veru og Tývari frá Kjartansstöðum (Sigríður Kristinsdóttir á Rimmu)

 

postheadericon Töltmót í Skeiðvangi

Kristófer tók þátt í töltmóti í Skeiðvangi 4. apríl. Keppti á Snædísi í opnum flokki 

og lenti í 2. sæti en þetta var hennar fyrsta mót.

Snædís frá Hólavatni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir

frá mótinu 

 
Gestir á síðunni
Það eru 10 gestir á síðunni núna